All language subtitles for 5000 Blankets IS

af Afrikaans
ak Akan
sq Albanian
am Amharic
ar Arabic
hy Armenian
az Azerbaijani
eu Basque
be Belarusian
bem Bemba
bn Bengali
bh Bihari
bs Bosnian
br Breton
bg Bulgarian
km Cambodian
ca Catalan
ceb Cebuano
chr Cherokee
ny Chichewa
zh-CN Chinese (Simplified)
zh-TW Chinese (Traditional)
co Corsican
hr Croatian Download
cs Czech
da Danish
en English
eo Esperanto
et Estonian
ee Ewe
fo Faroese
tl Filipino
fi Finnish
fr French
fy Frisian
gaa Ga
gl Galician
ka Georgian
de German
el Greek
gn Guarani
gu Gujarati
ht Haitian Creole
ha Hausa
haw Hawaiian
iw Hebrew
hi Hindi
hmn Hmong
hu Hungarian
is Icelandic
ig Igbo
id Indonesian
ia Interlingua
ga Irish
it Italian
ja Japanese
jw Javanese
kn Kannada
kk Kazakh
rw Kinyarwanda
rn Kirundi
kg Kongo
ko Korean
kri Krio (Sierra Leone)
ku Kurdish
ckb Kurdish (Soranî)
ky Kyrgyz
lo Laothian
la Latin
lv Latvian
ln Lingala
lt Lithuanian
loz Lozi
lg Luganda
ach Luo
lb Luxembourgish
mk Macedonian
mg Malagasy
ms Malay
ml Malayalam
mt Maltese
mi Maori
mr Marathi
mfe Mauritian Creole
mo Moldavian
mn Mongolian
my Myanmar (Burmese)
sr-ME Montenegrin
ne Nepali
pcm Nigerian Pidgin
nso Northern Sotho
no Norwegian
nn Norwegian (Nynorsk)
oc Occitan
or Oriya
om Oromo
ps Pashto
fa Persian
pl Polish
pt-BR Portuguese (Brazil)
pt Portuguese (Portugal)
pa Punjabi
qu Quechua
ro Romanian
rm Romansh
nyn Runyakitara
ru Russian
sm Samoan
gd Scots Gaelic
sr Serbian
sh Serbo-Croatian
st Sesotho
tn Setswana
crs Seychellois Creole
sn Shona
sd Sindhi
si Sinhalese
sk Slovak
sl Slovenian
so Somali
es Spanish Download
es-419 Spanish (Latin American)
su Sundanese
sw Swahili
sv Swedish
tg Tajik
ta Tamil
tt Tatar
te Telugu
th Thai
ti Tigrinya
to Tonga
lua Tshiluba
tum Tumbuka
tr Turkish
tk Turkmen
tw Twi
ug Uighur
uk Ukrainian
ur Urdu
uz Uzbek
vi Vietnamese
cy Welsh
wo Wolof
xh Xhosa
yi Yiddish
yo Yoruba
zu Zulu

Original subtitles

BYGGT Á SANNRI SÖGU

FYRIR MÖRGUM ÁRUM... Í FORT WORTH Í TEXAS

Heldurðu að við náum einhverju í dag?

Ég held að ef við hugsum svona mikið verði það langur dagur.

Sjáðu! -Já, vinur, svona.

Jæja, þessi slapp.

Svona. Kastaðu aftur.

Já, vinur.

Nú bíðum við, hljóðlega.

Þessi er næstum stærri en þú.

Ég veit, svo stór.

Eldum við ekki aborra þegar við komum heim?

Jú, ég held ég nái á pall ef ég næ svo stórum á mánudaginn.

Ertu í lagi, pabbi?

Já, vinur, já.

Mánudaginn, hvað er á mánudaginn?

Keppnin, Ungir veiðimenn í Texas. -Æ, já. Nei, auðvitað.

Svona, pabbi. -Heyrðu,

þú vinnur bikar á mánudaginn ef aborrinn verður svona stór.

En ef þú veiðir dósir,

getum við fengið reiðufé á endurvinnslustöðinni.

Hvernig hljómar það?

Rosa fyndið. -Mér er alvara.

GORVIN INNHEIMTUÞJÓNUSTAN

Skreytingarnar eru frábærar, maturinn er fullkominn.

Þú hefur aldrei gert betur, vina.

Veistu, þú áttir aldrei að hætta

viðburðaskipulagningunni. -Þú hefur sagt það tvisvar eða sex sinnum.

Já, ég veit... -Lífið fór öðruvísi.

Ég segi bara svona.

Jæja, tíminn er kominn, komdu. -Jæja.

Hann er kominn, hann er kominn.

Já, hann er kominn.

Hvað var mamma að gera? -Ekkert.

Ertu viss um að hann sé kominn? -Já, ég held það.

Heyrðirðu ekki í bílnum? -Kemur á hverri stundu.

Óvænt, vá. -Nei, í alvörunni.

Náðum þeim.

Ég trúi honum ekki.

Ekki séns. Hvað meinarðu?

Fékkstu hjartaáfall? Náði ég ykkur? Já?

Hvernig...? Hættu nú, ástin. Ég trúi þér ekki.

Ég hélt þú hefðir fulla stjórn.

Ég meina, ég reyndi. Ég sagði það væri ekkert í gangi.

Já, já, einmitt. -Færðu þig aðeins.

Til hamingju með daginn.

Gott að sjá þig.

Je minn eini, stóðuð þið bara svona,

bara eins og...? -Til hamingju.

Gott að sjá ykkur.

Ég veit um góðan.

Fyrir nokkrum árum fórum ég, Bobby, Derek og Doug

allir upp í Great Bear Lake í Kanada í smá strákaveiðiferð og útilegu,

þið vitið, tengslamyndun.

Svo við fórum, bara til að komast að því að það hafði verið óveður og flóð

sem hafði lagt landið í rúst í heila viku. Allir bátarnir í rúst, flotið burt.

Ekki séns fyrir okkur að komast út á vatnið

og við eyddum næstu fimm dögum í að kryfja innihaldið

í veski Dereks. -Jamm, gosarnir duga aldrei.

Ég sagði þér, ekki spila gosana,

en Bobby hérna öskrar allan tímann.

Ég meina, hann er að klikkast því hann var nærbuxnalaus

því Cyndi gleymdi að pakka nærbuxum.

Jæja... -Hann tuðaði og tuðaði alla vikuna.

Manstu eftir því? Manstu? „Ég fæ núningssár, maður.“

Allavegana, við förum loks heim

og Bobby fer strax að tuða um nærbuxnaskortinn.

Hann sagði: „Af öllu, hvernig gat hún gleymt þeim?“

Svo Cyndi, dýrlingurinn sem hún er,

stoppar hann strax,

fer og nær í veiðikassann hans, opnar hann,

og hann er stútfullur af nærbuxum. -Nærbuxum!

Honum fannst þetta ekki jafn fyndið og mér.

Er allt í lagi?

Heyrðu, komdu hingað. Ástin, ástin. Hvað gengur á, ástin?

Allt í lagi. Andaðu. -Þú ert maðurinn, Bobby.

Ástin, horfðu á mig.

Það er í lagi með þig.

Andaðu, ástin. Hvað gengur á, ástin?

Hvað gengur á, ástin?

Gerðu það segðu mér, talaðu við mig, hvað gengur á?

Ég er hérna, ástin, horfðu á mig.

Andaðu, það er allt í lagi. Allt í lagi, ástin.

Er í lagi með þig?

Nei. -Viltu koma inn?

Nei, nei, förum inn, ókei?

Komdu, komdu, svona, svona.

Förum inn, leggjumst aðeins.

Við komum rétt strax.

Getum við rætt málin? -Ég er úrvinda.

Getum við gert það á morgun?

Er það að gerast aftur?

Það er í lagi.

Hættirðu að taka lyfin þín?

Bobby, ástin.

Heyrðu, það er allt í lagi.

Allt í lagi.

Hvernig haldið þið að Saul hafi liðið

rétt eftir að Guð talaði við hann á leiðinni til Damaskus?

Sektarkennd, eftirsjá, skömm?

Það myndi ég vona.

Atist maður í góðu kristnu fólki, ætti manni að líða illa.

Ég er viss um að hann fann allt þetta, eins og við hefðum öll gert,

en hann lét hvorki skömmina né stoltið

koma í veg fyrir það sem hann þurfti að gera til að breyta rétt.

Okkur mistekst öllum, höfum brotalamir,

en ef við höldum áfram

eins og Saul gerði, skiptir það ekki máli.

Við getum sleppt taki,

eins og ég mun gera við guðsþjónustuna

því, já, Cowboys byrja eftir hálftíma.

Bobby, þú verður að tala við mig.

Þú mátt öskra, tala óskýrt, skiptir engu,

en þú verður að tala við mig.

Gerðu það.

Fyrirgefðu.

Hvað ertu að gera?

Phillip, upp með rúðuna. -En mamma...

Núna, Phillip!

Guð blessi þig, vinur.

Ég veit það er eitthvað en ég veit ekki hvað það er.

Ég held það sé hræðilegra að koma því í orð.

Meiddi hann þig?

Ó, nei, ekkert slíkt.

Það er eins og áður en öðruvísi.

Það er þetta myrkur sem lúmir yfir honum.

Ástin, þú gekkst í gegnum þetta áður með Bobby.

Það var heldur ekki auðvelt fyrir þig þá en þú tókst á því af fullum krafti.

Og ég hef alltaf dáðst að því.

Hvað ef það er verra núna?

Ef ég get ekki hjálpað honum?

Treystu að Guð viti hvað sé best fyrir þig

og fjölskylduna þína, elskan.

Hann troðfyllti hjartað þitt

og setti fólk í líf þitt sem elskar þig,

sem vill hjálpa þér.

Það er ekki allt undir þér komið.

Til í að lenda í öðru sæti?

Með þessari beitu?

Ég vann svo margar keppnir með þessu að ég get ekki talið.

Heyrðu, náðu stórum! Þú getur þetta.

Phil, hvar er pabbi þinn? Vill hann ekki viðurkenna að þú sért hans?

Heyrið mig nú, allar hreistraðar verur

í Lavon vatni eru dauðhræddar við ykkur.

Athugið með girnið, dömur og herrar,

og við byrjum þegar vísirinn hefur farið fimm hringi á klukkunni.

Þú ert bestur, Bobby.

Þú ert bestur, Bobby.

Heyrðu, Bobby...

Heyrðu, hvað gengur á?

Geturðu skoðað nokkuð hérna, vinur?

Komdu.

Já. -Komdu.

Sæll, ástin, ertu tilbúinn að gera þetta?

Já.

Jæja, eins gott þú náir stórum því ég er rosa svöng.

Maður sleppir þeim. -Ha? Hvað á það að þýða?

Eins gott þú fáir bikarinn svo við getum skipt honum út fyrir maískökur.

Allt í lagi. -Gangi þér vel.

Æ, kenndi mamma þér líka að veiða?

Jæja þá, tími til að byrja.

Fyrsta hollið er 45 mínútur, veiðið þá!

Hafðu engar áhyggjur,

við lögum þetta fyrir þig, ókei?

Við látum þig vita.

Ekkert stórmál, starfaðu bara með strákunum

og lagaðu málin

og reyndu að róa þetta

án þess að þurfa að gefa of mikinn afslátt, ókei?

Ertu tilbúinn?

Þeir geta ekki alltaf bitið á, annars kallaðist það að safna.

Hann sagðist myndu koma.

Ég veit, það var örugglega neyðartilfelli í vinnunni.

Hann lofaði.

Ástin, pabbi þinn elskar þig ofur heitt

og hann sleppir ekki að mæta af ástæðulausu.

Þú veist það, ekki satt?

Sko, hann er örugglega að hringja til að útskýra.

Það er mjög ósáttur krakki í bílnum...

Já, Joe, já. Ókei, ég kem rétt strax.

Hvað gengur á?

Spenntu beltið.

Vertu í bílnum, ég kem rétt strax.

Er í lagi með pabba? -Vertu í bílnum!

Svona, komdu hingað.

Bobby, hættu! Nei.

Sjáðu mig, Bobby, gerðu það. Horfðu á mig, ástin.

Við erum til staðar, Bobby. -Allt í lagi.

Ég veit þú átt erfitt og ég veit þér finnst þú einn

en þú ert það ekki, ég er hérna.

Heyrðirðu í mér, Bobby?

Gerðu það, segðu að þú heyrir í mér.

Það er allt í lagi.

Komdu, Bobby.

Það er allt í lagi.

Hlustaðu á mig.

Ég hef séð þig berjast.

Og það er enginn sterkari eða hugrakkari.

Og ég er hér til að berjast með þér.

Þú þarft bara að koma aftur til mín, gerðu það, Bobby, gerðu það.

Nei, hættu.

Hörfaðu, Bobby. Komdu aftur til mín, Bobby, gerðu það.

Ég passa þig, komdu bara aftur til mín.

Það er allt í lagi.

Það er allt í lagi, komdu bara aftur til mín.

Það er allt í lagi. Allt í lagi.

Nei!

Bobby! -Slepptu mér!

Þú skalt ekki taka mig! -Bobby! Þetta er ég!

Hættu, Bobby!

Hættu! Heyrðu! -Nei, pabbi.

Það er allt í lagi, Bobby.

Joe, ég...

Nei, engar áhyggjur, allt í góðu.

Ég hef þekkt Bobby lengi,

þú veist, við gengum í gegnum ýmislegt.

Ég veit hverju hann hefur átt í, ég...

ég áttaði mig ekki á að málin væru svona slæm.

Honum hefur gengið rosa vel í langan tíma.

Bara nýlega...

Hann þarf á aðstoð að halda, Cyndi.

Ég átti frænda í Amarillo fyrir nokkrum árum

sem allt í einu heyrði

og sá hluti sem voru ekki til, og það líktist þessu.

Ég er hrædd, Joe.

Það verður í lagi með hann.

Hann verður góður.

Finndu bara einhvern sem kann þetta

til að skoða hann og fáðu honum hjálpina sem hann þarf.

Ég hringdi þegar í Bartley lækni

og við hittum hann í fyrramálið

og höldum áfram. -Flott.

Þetta er galið.

Verður í lagi með Phillip?

Vonandi.

Jæja, fínt, gáðu að honum.

Allt í lagi.

Þarfnistu einhvers er ég hér.

Takk. -Ekkert að þakka.

Bobby!

Hefur hans aðeins verið saknað í fjóra tíma?

Þá er ekki hægt að segja hans saknað ennþá.

Þótt það hefði liðið nægur tími,

sagðirðu ekki að hann hefði farið sjálfviljugur?

Manninum mínum líður ekki vel.

Telurðu hann hættulegan?

Nei.

Þá er ekki mikið sem við getum gert.

Við höfum hann inni í kerfinu, höfum augun opin.

Í flestum tilfellum koma þeir aftur heim.

Halló, skrifstofa sjúkrahússins.

Sæl, ég heiti Cyndi Saunders

og ég ræddi við einhvern fyrr í dag varðandi manninn minn.

Já, ég sendi umbeðna mynd af honum í tölvupósti,

og vildi staðfestingu á að þú hefðir fengið hana.

Jæja, gott, takk fyrir hjálpina.

Mætti ég koma seinna í dag með einblöðunga?

Takk. Bless, bless.

SKIPTIR ENGU HVERNIG ÞÚ DETTUR HELDUR HVERNIG ÞÚ KEMST Á FÆTUR

Góðan daginn, ég hringi frá innheimtuþjónustu Texas.

Afsakaðu ónæðið í dag en við höfum reynt að ná sambandi

við Robert Saunders í nokkrar vikur núna

varðandi ógreidda kreditkortareikninga.

Þar sem við höfum ekki fengið nein svör verðum við því miður

að tilkynna vanskilin.

GJALDDAGI LIÐINN

BANKI

Gekk svona vel?

Í sannleika sagt er eldhúsið allt of stórt.

Hvern langar að þrífa allar flísarnar? Eða stigann?

Þú ert ekkert unglamb, hnén munu þakka þér.

Cyndi?

Góðan daginn, Marilynn.

Ég vildi bara gá að þér með allt sem gengur á.

Takk, fallega gert, en við erum góð.

Þú ert svo sterk, Cyndi.

Væri ég þú, vissi ég ekki...

Jæja, margir hafa það verra en við

og þetta er bara tímabundið.

Viltu ekki koma í hádegismat?

Ég stal góðri sumarkúrbíts-kássuuppskrift

frá móður minni... -Takk, en sama og þegið.

Ekki satt, vinur?

Jú. -Jæja, vanti þig eitthvað...

Já, takk kærlega, ég met það.

TIL SÖLU FJÁRNÁM

Jæja, taka þessa, þessa og gefa.

Ekki horfa svona á mig.

Við hvern talarðu, mamma?

Bara draug fyrra lífs míns.

Hvað þá?

Ekkert, ástin. Jæja, ég þarf hjálp.

Það eru þrjár hrúgur. Það er taka, gefa og rusl.

Verðum að vera miskunnarlaus

annars fer amma þín yfir um.

Geturðu sett allt þetta í ruslakassann?

Já, mamma, geri það.

Takk.

Ástin.

Mamma.

Ég veit þú saknar hans rosalega.

Og ég veit hann saknar þín jafn mikið hvar sem hann er.

Hann vildi ekki yfirgefa okkur.

Hann getur ekki gert að því að hann sé veikur.

Veistu, ég skyldi aldrei af hverju hann elskaði þetta svona mikið.

Kannski við ættum að prufa.

Ástin nær ekki svo langt.

Amma!

Hann situr þarna einn með asnalegu klippinguna sína.

Sjáðu framan í hann.

Hann er klikkaður. -Ég veit.

Æ, þarftu leikfang? Ferðu að grenja án pabba þíns?

Fáðu mér hann, Bryan, pabbi á hann.

Oj, vonandi er geðveikin ekki smitandi.

Gerðu það aftur, gerðu aftur grín að pabba!

Þú ert klikkaður, alveg eins og hann.

Fyrirgefðu, mamma. Bryan...

Kýlirðu nefið á fólki?

Þú braust næstum nefið á honum.

Hann kallaði pabba klikkaðan.

Já, en hvað veit hann um pabba þinn?

Ekkert. -Einmitt.

Hann vildi ögra þér og þú leyfðir honum það.

Og nú hef ég misst af tveimur starfsviðtölum út af því.

Við báðum ekki um þetta.

En við ráðum hvernig við bregðumst við.

Finnum við hann?

Ég held það.

En þar til verðum við að bera ábyrgð.

Sama hve erfitt og sama þó allt í okkur

vilji kýla í andlitið á heiminum.

Frú Saunders. -Ó, já.

Þú stafaðir „athygli“ vitlaust.

Er það?

Þarna.

Já.

Stafsetningin...

Í hreinskilni er ekki mikið til að byggja á hérna, frú Saunders.

Já, ég veit að starfsreynsla mín er takmörkuð.

Það stendur að þú hafir ekkert unnið í 10 ár.

Jú, ég hef verið mamma.

Í fullu starfi í 10 ár,

ég hef séð um eiginmann minn, son og heimili.

Það var vinnan mín.

Og erfiðisvinna, ég veit það.

Hr. Cummings, ég veit að ferilskráin er kannski ekki fullkomin.

En ég er ábyrg, dugleg og ákveðin.

Ég mæti alltaf á réttum tíma, kvarta aldrei,

og ég lofa að þú getur stólað á mig.

Láttu mig ekki sjá eftir þessu.

Ég læt reyna á það en þú þarft að vera snögg.

Vonandi ertu fljót að læra.

Ó, jæja þá, jæja, takk.

Takk fyrir.

Og við fáum 10% afslátt af öllum matvörum. Ekkert að þakka.

Jafnvel sjávarfangi?

Jafnvel sjávarfangi.

Þá er það opinbert. Þriðjudagskvöld verða humar og ostamakkarónukvöld.

Þessi slagsmálahundur sem þú elur upp þarf kjöt á beinin.

Ekki koma mér í gang með það.

Eina stundina talar hann ekki,

þá næstu er hann orðinn lítill Mike Tyson.

FT. WORTH LÖGREGLAN

Halló.

Ég veit þetta er erfitt, frú Saunders.

Þú þarft bara að fylgja okkur.

Þessa leið.

Það er ekki hann.

Hvað þá...?

Jakkinn sem hann var í

var með þvottahússmiða með nafni mannsins þíns.

Bobby á hann.

Er allt í lagi, frú?

Já.

Hvernig...?

Þau verða veik, leggjast, það kólnar, þau komast ekki á fætur aftur.

Rigningartíminn er slæmur. Það versnar bara þegar það fer að snjóa.

Hvað verður um hann?

Við reynum að finna ættingja. -En ef þið finnið enga?

Hverfur hann bara, án jarðarfarar

eða kveðjustundar, eða neitt?

Hvar funduð þið hann?

Leitarðu að Keith? Þetta er jakkinn hans.

Fyrirgefðu?

Þú ert of sein, hann fór í síðustu ferðina í gærkvöldi.

Þekktirðu hann?

Hver ert þú eiginlega? Og hví spyrðu?

Ég samhryggist þér.

Ábyggilega.

Fyrirgefðu?

Ef þú veist að Keith er dauður, hví ertu hér?

Hann á ekkert til að taka.

Ég veit ekki. Ég veit ekki og held ég...

Ein af þeim.

Ræddi hann við þig fyrir utan vinnuna,

söng lag fyrir þig?

Þú gafst honum aura af og til, kannski matarleifar.

Nú er hann dáinn og þú þjökuð sekt, er það ekki nokkuð rétt?

Nei, reyndar alls ekki.

Leitt að svekkja þig.

Hérna, fyrir ómakið.

Er samviskan hrein og góð núna?

Ekki vera ókunnug.

Ertu svöng?

Hvað heldur þú?

SAKNAÐ

Nei, hljómar eins og þú sért að gera allt rétt,

gáðir á réttu staðina.

Það er fullt af holum að fela sig í hérna í borginni

vilji maður ekki finnast.

Hann birtist örugglega.

Það er ekki þess virði.

Jæja. Keith.

Þekktirðu hann?

Já, ég þekkti hann í nokkur ár.

Held hann hafi komið hingað frá New Orleans eftir fellibylinn.

Átti hann fjölskyldu?

Já, veistu, reyndar

teiknaði hann rosa flott fjölskyldutré

með fullt af greinum

og lét mig líka fá símanúmerin hjá öllum ættingjunum.

Þú gerir grín af mér.

Hví allur áhuginn á Keith?

Ég trúi ekki á hjálpsama samverjanum, svo þú getur hætt því.

Ég vil víst bara vita meira um manninn

sem ég taldi manninn minn áður en þeir lyftu lakinu.

Ég þykist ekki vera engill.

Ég er ekki gallalaus.

En það er erfiðara að takast á við málin og hunsa allt tilgangsleysið.

Já, Keith var fínn náungi, blótaði aldrei,

deildi öllu sem hann gat, söng mikið,

taldi sig vera Marvin Gaye.

Ég mun sakna hans.

En hvað með þig?

Nei, ég get alls ekkert sungið.

Ég meina sagan þín.

Ekki ólík margra annarra.

Ég þjónaði í Kúveit, sá margt sem ég vildi hafa sleppt að sjá,

kom aftur til Waco til að gleyma.

Náði mér í mann.

Náði mér í lítið hús.

Hann varð veikur, hann varð rosa veikur.

Mér þykir það leitt. -Mér líka.

Þegar hann dó hætti ég bara að gera allt.

Hætti að standa á sama.

Ég veit ekki. Ég gæti ekki púslað því saman þó ég reyndi.

Maður festist í straumnum, bara...

Ekki gera það.

Fyrirgefðu, fyrirgefðu.

Þú segir það oft, veistu.

Fyrirgefðu.

Afsakanir eru góðar

en vöfflur, það er sko besta meðalið.

Hérna, smakkaðu.

Takk fyrir máltíðina.

Ekkert að þakka. Viltu far eitthvert?

Nei, ég er góð, mig langar að labba.

Ertu viss? Það er ekkert mál.

Já, nei, ég er góð.

Vonandi er í lagi með manninn þinn.

Takk.

Delia!

Ég veit ekki, kannski hjálpar það gegn kuldanum.

Ertu viss? -Já, taktu það.

Það hjálpar, takk.

Ekkert að þakka. -Takk.

Góða nótt. -Góða nótt.

Hvar varstu, mamma?

Ég varð að gá að nokkru í miðbænum.

Varðandi pabba?

Eiginlega.

Ég hitti góða konu

og verð að segja þér nokkuð og vona að þú reiðist ekki.

Ég geri það ekki.

Manstu eftir teppinu sem þú áttir í bílnum?

Því sem þú fékkst frá Fork vatni?

Já.

Konan sem ég hitti í kvöld,

hún átti ekki mikið, svo ég gaf henni teppið þitt.

Var henni kalt?

Já, elskan, henni var kalt.

Hún þurfti það þá meira en ég.

Þú ert aldeilis gott barn.

Hver ól þig upp?

Heldurðu pabba sé líka svona kalt, hvar sem hann er?

Vonandi ekki.

Ég vildi við gætum gefið þeim öllum teppi, hverju einasta þeirra.

Góðan daginn Cyndi. -Góðan daginn, séra.

Leitt að koma fyrirvaralaust. Ég reyndi en mér tókst það ekki.

Ég var að frétta að væruð flutt. Það er fallegt.

Þið komuð til mín daginn sem ég las úr Biblíunni

og mér fannst ég verða að gá að ykkur.

Komdu inn. -Takk.

Þú lagar sterkt kaffi.

Fjallakaffið er á afslætti þessa vikuna.

Takk fyrir það.

Mig grunar að þú sér hér til að gefa mér ráð.

Segi það kannski ekki, frekar beiðni,

um hlustun, íhugun.

Ég lofa að ausa ekki Biblíulestri yfir þig.

Ég les Biblíuna, ég hef lesið hana,

og þú þarft ekki að hafa áhyggjur.

Ég stend á fætur daglega og set annan fótinn fram fyrir hinn,

og við komumst af.

Guð vill að þú gerir meira en að komast af, Cyndi.

Nú já?

Jæja, þá hefði hann kannski átt að stoppa manninn minn

frá því að tapa sér...

og yfirgefa okkur auralaus...

og son minn áttavilltan,

óvitandi um hvort hann sjái pabba sinn aftur...

og yfirgefa mig.

Fyrirgefðu. Ég veit að það virkar ekki svona.

Það sem þú upplifir, reiðin og sorgin,

það er ríkt í okkur

en við höfum líka tólin til að yfirvinna það.

Ég bið, séra, endalaust þessa dagana.

Bænir eru gott tól, virkilega, en þær eru bara byrjunin.

Það er samfélag í Mercy Valley sem þú getur leitað til.

Sama hve lítið eða stórt það er, hjörtun þar eru þér opin.

Og það er rosa fínt og allt

en það er enginn sem getur hjálpað með það sem við þurfum.

Ég skil að það virðist þannig

en það liggur styrkur í öðrum, í þeirra trú.

Sem getur hjálpað þér að finna tilgang.

Jæja, ég vil ekki vera dónaleg eða neitt

en við eigum langan dag framundan...

Auðvitað, Cyndi... -Ég fylgi þér út.

Takk fyrir að gá að okkur. Sérstaklega Phillip.

Veistu...

það virðist ekki alltaf vit í áætluninni.

Að heyra einhvern tala um áætlun

virkar eins og að snúa hnífnum, ég skil það.

En enginn, síst af öllu Hann, vill sjá þig afvegaleidda.

Haltu hjartanu opnu, Cyndi.

Hlustaðu, sjáðu, vertu kallinu tilbúin þegar það kemur.

Þú veist hvar mig er að finna þurfirðu fleiri ráð.

Ég er til staðar, öll kirkjan er það.

Jæja. -Takk.

Mamma.

Í dag eigið þið von á einhverju góðu.

Nú ætla ég ekki bara að tala.

Einum safnaðarmeðliminum langar að tala við ykkur

um nokkuð ótrúlega mikilvægt.

Þú getur þetta.

Cyndi Saunders, gólfið er þitt.

Takk fyrir tækifærið, séra Stevens,

til að tala við alla,

og takk fyrir að hlusta.

Mörg ykkar þekkja Bobby, manninn minn. Erfitt að gera það ekki.

Hann missti aldrei af guðsþjónustu og var alltaf til staðar

til að rétta hjálparhönd þó hann þekkti ykkur ekki.

Þið hafið líklega heyrt margar sögur af honum undanfarið.

Málið er að maðurinn minn er veikur...

og hann fór reyndar frá okkur fyrir nokkrum mánuðum.

Þegar sá veruleiki varð, vildi ég bara fela mig.

Ég vildi fela mig fyrir heiminum

og jafnvel fyrir eigin hugsunum.

Það var erfitt að sjá allt sem var fyrir framan mig.

En svo var ég minnt á að jafnvel á okkar erfiðustu augnablikum

verðum við að hafa augun opin.

Við sonur minn erum hér í dag til að biðja ykkur um hjálp.

Ekki fyrir okkur, heldur fólk eins og Bobby.

Fólk sem er á götunni og finnst það gleymt og ósýnilegt.

Það eru yfir 5.000 heimilislausar sálir bara í þessari borg,

og mér skilst að veturinn verði slæmur.

Svo það er ósk Phillips og verkefni mitt

að ná til þeirra allra

með einfaldri umhyggjusemi.

Teppi.

Við erum ekki grunnhyggin.

Við vitum að vandamál þessa fólks eru rosaleg.

En við vitum líka að góðmennska

getur verið upphaf.

Svo endilega, ef þið getið gefið, mætum við það mikils

og vonandi getum við endurvakið trúnna hjá þeim sem eru týndir.

Er það allt?

Tvær vikur? Er þetta það besta sem fólk gat gert á tveimur vikum?

Hátíðarnar nálgast

og fólk á væntanlega ekki mikið.

Mörg góðgerðarsamtök biðja um aðstoð.

Ekki afsaka þau, í alvöru, elskan.

Kannski koma fleiri í næstu viku. -Kannski.

Bíddu, kannski er peningur.

Skiptimynt?

Sæl vertu, Cyndi.

Hæ, þrjá fullorðins og eitt barn, takk.

Hverjir eru vinirnir?

Þetta er Delia vinkona mín og þetta er Paul.

Taldi gott að fólk hitti þá sem við reynum að hjálpa.

Er hún ekki klók?

Aldeilis frábær hugmynd.

Jæja, tilbúin?

Gömlu konurnar úr kirkjunni gera bestu kjötbollurnar.

Nú? Hvað meinarðu, fimm stjörnu? -Sex.

Vertu vitur, litli vinur.

Takk fyrir.

Fallega gert.

Southern. Stelpan mín, dóttir mín, hún er í námi í Southern.

Nú, já?

Já, hagfræði. -Almenn verkfræði. Útskrifaðist í 82.

Virkilega falleg heimavist.

Jæja?

Fimm og hálf. -Hvað þá?

Fyrirgefðu, drengnum hér finnst kjötbollurnar vera sex af fimm mögulegum.

Ég sagðist ekki ætla yfir 5 og hálfa. Hvað finnst þér?

Gæti verið rétt.

Segði jafnvel sjö.

Jæja, takk, takk kærlega.

Nú fæ ég stöðugt að heyra þetta, ha?

Þakka þér. -Þakka þér.

Sæl, Marilynn. -Sæll vertu.

Góðan daginn.

Spurning, eigið þið enn eftir hvítlauksbrauð?

Þau keyptu auka þegar þau vissu af þér.

Snilld.

Hvernig gengur hjá blaðinu?

Upptekinn, en kvarta ekki.

Hvað gengur á þarna?

Cyndi virðist meina þetta með teppin.

Nú? Vissi ekkert af því.

Mættu í guðsþjónustur.

Fyndin.

Hver er þeirra saga?

Ótrúlega, ótrúlega gefandi, finnst mér.

Hvetjandi saga. -Takk.

Takk fyrir.

Hver er stærsta áskorunin við það sem þið reynið að gera?

Að fá fólk til að sjá það sem það forðast vanalega.

Vá, er það rétt?

Negldir það.

Svo ég segi sjálf frá

gleymir maður sér svo í sínum vanda

að maður gleymir að það er til fólk

sem hefur það verra.

Ef við getum safnað 5.000 teppum fyrir jól,

verður það þess virði.

Já, hvaða þýðingu hefur þetta haft fyrir þig?

Þegar pabbi fór var ég reiður, hræddur, sorgmæddur. Er það ennþá.

En að við mamma gerum þetta hjálpar honum

með því að hjálpa öðrum, og ég held honum hefði líkað það.

Það held ég líka.

Les krakkinn Shakespeare í frítímanum?

Held honum hefði líkað það.

ÓSKASTOFNUN PHILLIPS TEPPI ÓSKAST

HVERNIG Á AÐ BÚA TIL VEFSÍÐU

HEIMILISLAUSUM Í FORT WORTH FJÖLGAR

ÓSK PHILLIPS HLÝJAR HEIMILISLAUSUM

PHILLIP SAUNDERS BERST GEGN HEIMILISLEYSI

Veistu, ef helmingur starfsmannanna hefði helming dugnaðarins...

Þá gætirðu ekki kvartað á starfsmannafundum.

Sinnirðu enn teppaverkefninu? -Já.

Það er fínt, sjálfboðavinna og slíkt.

Það er fínt áhugamál.

Gaman að þér líki áhugamál mín.

Veistu, þar sem þú ert þegar besti starfsmaðurinn minn,

veit ég að ef þú notaðir sumt af þeim tíma hérna

gætirðu orðið aðstoðaryfirmaður.

Snýst ekki allt um forgangsröðun? Hvað skiptir mestu?

Kannski ekki mitt að segja.

Ég vil sjá þig ná þangað sem þú átt skilið.

Takk, Jim. -Haltu áfram.

Sjáðu, þú ert frægur.

Vá, þetta hjálpar.

Já, sakar ekki.

Jæja, förum af stað

og komum teppunum til síns heima.

Hvað með fólkið þarna? -Það er góð hugmynd.

Sæl verið þið, má bjóða ykkur teppi?

Við erum að gefa þau.

Hvað með fólkið þarna?

Já.

Hæ, við erum frá Ósk Phillips

og erum bara að gefa teppi.

Nei.

„Nei.“

Nei? -Nei, ég vil ekki teppið ykkar.

Ó, þau eru ókeypis og hrein, og hérna, gerðu svo vel...

Ég sagðist ekkert vilja, vil ekki teppi, ég vil ekkert frá ykkur.

Fyrirgefðu.

Fyrirgefðu okkur.

Hver teljið þið ykkur vera? -Fyrirgefðu.

Hver teljið þið ykkur vera?

Húsnæðis-og hverfisþjónustan, get ég aðstoðað?

Hæ, ég heiti Cyndi Saunders,

þið sjáið um athvörf heimilislausra í bænum, ekki satt?

Jú, frú, við sjáum um öll heimili í eigu borgarinnar.

Flott, við sonur minn höfum safnað teppum

og við ætluðum að afhenda þau hvert og eitt,

en af mörgum ástæðum virðist það ekki góð hugmynd.

Ég hringdi því til að gá hvort það væri mögulegt

að gefa athvörfunum þau beint.

Safnað þeim öllum saman og gefa þau.

Já, frú, það ætti að vera hægt, ertu með trefla?

Teppi. -Hafirðu nokkur teppi til að gefa

geturðu komið þeim í eitt athvarfið.

Frábært, þurfum við að gera eitthvað fleira?

Ætti ekki að þurfa gögn fyrir teppagjöf. Það ætti að vera í lagi.

Jæja. Stórkostlegt, takk fyrir hjálpina, Trey.

Gott að ég gat hjálpað. Eigðu góðan dag. -Sömuleiðis.

Heyrðu, hvernig fékkstu D fyrir að deila brotum?

Litla systir mín kann það. -Gleymdi að þú værir snillingur.

Ég hef aldrei fengið lægra en C.

Láttu mig vita hvernig 5. bekkur verður næst.

Hvað gónirðu á?

Hvað viltu?

Bragð sem pabbi kenndi mér.

Bragð fyrir? -Að deila brotum.

Sko, brauð sinnum brauð, borgari sinnum ostur.

Vonandi hjálpar það.

Fyrirgefðu.

Viljirðu rúm, er fullt hjá okkur.

Nei, ekkert slíkt. Við færum góðar fréttir.

Við höfum safnað teppum.

Þúsundum.

Það hljómar galið en ég get ekki gert mikið með þau.

Kannski einn, tvo kassa, en þúsundir? -Þetta eru ókeypis teppi.

Húsnæðis-og hverfisþjónustan sagði

það yrði ekkert mál að koma þeim í athvarf.

Frú, við viljum líka hjálpa fólkinu en...

Hvað meinarðu?

Það er ekki nóg pláss til að geyma teppafarm hérna

og mannekla til að sinna vinnunni daglega, hvað þá dreifa svona löguðu.

Það er heimskulegt. -Já.

Við erum upp fyrir haus í skriffinnsku

til að fá þá hluti sem þarf.

Æ, fyrirgefðu, ég veit það er ekki þín sök

en það er ferlega svekkjandi.

Hjartað er á réttum stað en ekki nógu margir láta sig málin varða.

Við höfum næg teppi hér

fyrir rúmin sem við bjóðum, sem eru ekki mörg,

en ef þið lumið á hreinlætisvörum,

raksköfum, svitalyktareyði...

Við sjáum til hvað við getum gert.

Takk fyrir tímann.

Ekkert að þakka.

Svona, vinur, komum.

Það er rangt hjá þeim. -Hún virkaði sannfærandi.

Hún sagðist frekar vilja raksköfur en gagnslausu teppin okkar.

Hvar er þín samloka?

Fékk hamborgara.

Fékkstu hamborgara en ég kjötloku?

Ég fékk líka kjötloku, ég gerði þær.

Mér finnst þær ekki svo slæmar, er það?

Þær eru góðar, takk.

Eigum við að býtta? Eru teppin slæm hugmynd?

Nei, rólegur, vinur.

Sofirðu nógu lengi á þessum götum

áttarðu þig á að teppi er meira en bara teppi.

Og veturnir eru ekkert grín.

Jafnvel í Texas.

Hvað er þetta?

Þetta vinur minn,

þetta hér er 3. brynvarða riddaraliðið.

Það er flott. -Lítur vel út þarna.

Takk, frekar stolt af því.

Saumaðir þú þetta? -Já.

Geturðu saumað eitt á minn? -Auðvitað, en það er ekki ódýrt.

Bíddu, taldi ég þessa hrúgu?

Jú, ég taldi hana, já.

Haldirðu þessu áfram finnumst við undir ullar- og pólýesterhrúgu.

Sástu lyklana mína? -Nei, en veistu hvað?

Við áttum að velja vettlinga.

Rosa fyndið,

en ekki fyndið að ég sé sein í bókarklúbbinn.

Ég elska þig, ég elska Phillip, ég elska þetta verkefni,

en ég bara... Himneski faðir, hjálpaðu dóttur minni

á vegferð sinni að finna annan stað

til að geyma öll teppin. -Ég skil.

Áttu eitthvað stærra?

Hvað ertu að geyma?

Draum.

Nýtt í fréttum hjá KLX.

Norður Texas virðist eiga von á erfiðum jólum.

Veðurstofan gaf út veðurviðvörun

frá og með laugardeginum til 28. desember.

Frostregn og slydda víkja fyrir ís

þegar jólin nálgast.

Búist er við að vindkæling fari neðar en -10...

Þetta er Bobby Saunders, skildu eftir skilaboð

og ég hringi þegar ég get.

Halló.

Það er allt mér að kenna.

Þetta var slys, ástin.

Það er allt í lagi.

Geturðu farið heim með hann?

Ég held ég þurfi smá tíma í næði.

Já, auðvitað, elskan.

Komdu, ástin.

Fyrirgefðu, en það er fullt í kvöld, vinur.

Athugaðu á 4th Street.

Halló?

Ó, já, hr. Cummings, sæll.

Ég er reyndar ekki viss.

Já, ég held hún komi ekki í dag.

Nei, ég...

Já, auðvitað, ég læt þig vita.

Allt í lagi, vertu sæll.

Elskan, Cyndi.

Þú verður að borða eitthvað annars tek ég því persónulega.

Manstu þegar þú sagðist hata mig?

Ég sé ekki eftir mörgu en gleymi þeim degi aldrei.

Tárin streymdu niður sætu vangana...

Þú hafðir valið fallegan fölleitan kjól

fyrir páskaguðsþjónustuna.

Þú elskaðir kjólinn til tunglsins og til baka,

og ég fór með hann í hreinsun

mánudaginn fyrir páska.

Pabbi þinn fór á miðvikudeginum.

Og heimurinn minn hrundi allt í einu.

Fór víst ekki í sturtu í viku.

Svo á páskadagsmorgun...

þegar þú baðst mig um kjólinn þinn...

hafði ég gleymt honum.

Ég hafði ekki hugsað um neitt.

Og þú sagðir það sem þú sagðir, og ég brjálaðist...

En sá máti að fagna upprisunni á.

Ég sé eftir að hafa ekki sótt kjólinn.

Nú það nýjasta um þennan hættulega kafaldsbyl

sem herjar á Norður-Texas í næstu viku.

Yfirvöld hvetja alla íbúa til að undirbúa sig

fyrir það sem ætla að stefna í mínus þrjátíu gráður

og óreglulegri úrkomu.

Nú spá sérfræðingar okkar

að mesta frostið muni því miður lenda á okkar svæði

á aðfangadagskvöldi.

Haldið á ykkur hita og gætið ykkar.

Takk fyrir. Vegavinnan tekst á við mikla hálku...

Við megum ekki gefast upp.

Þau eru öll ónýt.

Byrjum þá aftur. -Það er ekki svo einfalt.

Víst, þetta fólk þarna úti eins og Delia, eins og pabbi.

Hann er enn úti, þau eru það öll, við megum ekki bregðast þeim.

Það fer að verða rosa kalt. Þau þarfnast okkar.

Við hjálpum kannski ekki öllum en ef við hjálpum nokkrum...

Þetta er eitt.

Þið vitið að þetta var erfitt ár fyrir fjölskylduna.

Stundum gerast hlutir og maður veit ekki hvernig maður heldur áfram.

Við mamma vildum snúa því sorglega sem kom fyrir okkur

upp í eitthvað gott,

og fullt af fólki hjálpaði.

Það varð slys, svo við þurfum að byrja upp á nýtt.

En það er allt í lagi, eins og amma segir alltaf

verðum við að treysta Guði.

Bylurinn kemur innan fárra daga

svo við gerum allt sem við getum til að hjálpa.

Óskalistinn minn er stuttur fyrir þessi jól.

Ég vil pabba heilan á húfi

og ég vil koma teppi til eins margra og ég get.

Ef þið eða fjölskyldur ykkar getið hjálpað,

mætum við það mikils.

Trúum að við breytt hlutunum,

sama hve smáum.

Ef við hættum að trúa á það, hættum við að lifa.

Ansi mörg teppi. -Frekar gott, ekki satt?

Gott að ég náði þér.

Systir mín kom með þetta í morgun. -Frábært.

Hvernig ætlarðu að dreifa þeim?

Við Phillip ætlum að deila þeim

á aðfangadagskvöld og við þurfum alla mögulega aðstoð.

Margar hendur létta vinnuna.

Áhyggjuefnið núna

er það sem virðist stefna í ótrúlega kalda nótt.

Það er veðurviðvörun um allt fylkið.

Það er líka viðvörun um kafaldsbyl á hluta Vestur-Texas,

og við búumst nú við kvöldi sem gæti orðið enn kaldara.

Undirbúið ykkur fyrir kuldann, Texas,

þetta verður kaldur desember sem mun slá met.

Er bíllinn örugglega nógu stór? -Sá stærsti sem þau áttu.

Og þið viljið gera þetta allt í kvöld

á aðfangadagskvöld?

Bylurinn bíður ekki betri dags. Takk fyrir komuna.

Ég hjálpa gjarnan.

Og Bobby hefði sparkað í mig

ef hann vissi að ég hefði látið þig um þetta.

Hérna, vinur.

Hæ, afsakið ónæðið.

Þú komst, séra minn.

Þú ættir að sjá nokkuð.

Hvað meinarðu?

Komdu og sjáðu.

Allt í lagi.

Hvar? -Aðeins áfram.

Hvað gengur á?

Hæ, við fréttum að þið þyrftuð aðstoð.

Gleðileg jól.

Heyrið þið, ég vil aldrei sjá þessi teppi aftur,

förum því út og hlýjum fólkinu, allir með?

Gleðileg jól. Handa þér.

-Gleðileg jól. -Takk.

Heyrðu, er allt í lagi með þig?

Heyrðu, heyrðu.

Rólegur, rólegur, þetta er góði fóturinn minn.

Er allt í lagi?

Æ, þú lítur illa út.

Æ, heyrðu, hérna.

Þetta er eitthvað handa þér.

Takk. Takk fyrir.

Farið heim og hlýið ykkur, það verður verra.

Ég afhendi nokkur enn og sé ykkur heima.

Beint þangað og til baka. -Já.

Tilbúinn? -Já.

Halló, við erum með teppi handa ykkur öllum.

Takk, ástin.

Gleðileg jól. -Gleðileg jól.

Gleðileg jól.

Gleðileg jól. Hér er teppi fyrir þig.

Takk fyrir að bíða.

Ertu tilbúinn?

Gleðileg jól, Paul.

Gleðileg jól, litli vinur.

Heyrðu, litli minn, bíddu!

Bíðið! Stoppið!

Er þetta týndi maðurinn?

Hérna.

Hérna.

Hann var hérna.

Ertu viss? -Já, ég er handviss.

Bobby!

Bobby!

Pabbi!

Heyrið þið þetta?

Pabbi!

Bobby. -Gerðu það vaknaðu, pabbi.

Gerðu það vaknaðu, pabbi. -Bobby!

Svaraðu mér, Bobby, heyrirðu?

Pabbi, vaknaðu, gerðu það.

Hæ, já, ég fann manninn minn. -Vaknaðu.

Ég held hann sé slasaður. Ég er á horninu á Hartford og East 3rd.

Flýtið ykkur. -Pabbi!

ÞREMUR MÁNUÐUM SEINNA

Jæja, hvað finnst þér?

Býðurðu mér starf, strákur?

Ætli það ekki.

Við höfum fengið mörg notuð teppi

sem þarf að gera við fyrir afhendingu

og ég hélt að með fínu saumavinnunni þinni...

Þið hafið ekki efni á mér.

Hvað viltu mikið?

Þú ættir að íhuga það. -Það geri ég klárlega.

Viltu far?

Nei, þið þekkið mig.

Delia!

ÓSK PHILLIPS HLÝJAR HEIMILISLAUSUM HJÖRTUM

Eftir að hafa uppgötvað nýjan tilgang

stofnuðu Cyndi og Phillip Ósk Phillips árið 2005.

Trúföstu góðgerðarsamtökin vaxa stöðugt,

langt umfram söfnun 5.000 teppanna fyrsta árið.

Í dag safnar Ósk Phillips teppum, mat og yfir 100.000 nauðsynjavörum árlega

fyrir heimilislausa í Norður-Texas...

þökk sé samfélagi skóla, kirkja, fyrirtækja og einstaklinga.

Þótt Bobby hefði sameinast fjölskyldunni og hlotið ást og umhyggju,

á hann enn erfitt með geðsjúkdóm sinn.

Hin sanna Cyndi!

Þetta er svo ótrúlegt.

Guð minn góður, þetta er svo ótrúlegt.

Vá, en frábært að hitta þig.

Þú ert svo falleg. -Þú ert glæsileg.

Þú ert svo falleg.

Sjá þig.

Við erum sögu þinni svo þakklát... -Nei, ég er það.

og við erum svo glöð að segja hana.

Það er svo fallegt það sem þið gerðuð

og hugrakkt af ykkur.

Það er mér svo mikill heiður að fá að leika þig.

Ó, sjá þetta, Cyndi Bunch og Anna Camp.

Í alvörunni. -Í alvöru.

Íslenskur texti: Unnur Friðriksdóttir

Can't find what you're looking for?
Get subtitles in any language from opensubtitles.com, and translate them here.